Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par um þrítugt fyrir utan gistiheimili í austurbæ Reykjavíkur um tvö leytið í dag. Parið fór inn í anddyri gistiheimilisins og stal þar ýmsum munum úr farangri ferðamanna.
Þá reyndi fólkið einnig að fela hluta af farangrinum á gistiheimilinu. Er talið að þjófarnir hafi ætlað að vitja farangursins síðar.
Að sögn lögreglu sást til parsins og var í kjölfarið beðið um aðstoð lögreglu sem handtók fólkið. Það dvelur nú í fangageymslum lögreglu og verður yfirheyrt síðar í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun