ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Netníðingar halda fram drykkjuskap og kvennafari

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:22 › 6. september 2009
Netníðingar hafa dreift sögum um framhjáhald og drykkju þingmannsins.

Netníðingar hafa dreift sögum um framhjáhald og drykkju þingmannsins.

Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, lýsir á Pressubloggi sínu hvernig óhróðri hafi beinlínis verið dreift á netsíðum til að sverta einkalíf hans. Björgvin, sem á að baki áfengismeðferð, var borinn þeim sökum að hafa verið drukkinn á skemmtistað og að auki á kvennafari en hann er í farsælu sambandi.

,,Nú nýverið upplifði ég hinsvegar nýja vídd í nafnlausu níði og rógburði á netinu. Þar er farið af algjöru miskunnarleysi í mitt einkalíf og hátt reitt til höggs. Stofnaður var þráður af netníðingi undir dulnefni á síðunni er.is. Ekkert skyldi fara á milli mála og hét þráðurinn mínu nafni og því logið blákalt upp á mig að ég hefði verið drukkinn á skemmtistað og á kvennafari að auki.
Semsagt; fullur að halda framhjá," bloggar Björgvin.

Hann segir að neti sögunni hafi verið dreift víðar á Netinu og á Facebook. Loks hafi sambýliskona hans fengið hana senda. Á endanum hafi skemmtiritið Séð og heyrt fengið senda tilbúna útgáfu.

..Um miðja nótt miðvikudaginn 26. september sagan send listavel skrifuð á Séð og heyrt. Þá búið að barna söguna og tiltekinn staður nefndur og dróttað að skilnaði hins sex barna föðurs. Blaðið var svo vinsamlegt að senda mér afrit af rógburðinum og þá fyrst varð mér ljóst að um mig væri setið af dæmalausri hörku. Auðvitað leiðrétti ég lygina við blaðið og bað þá í öllum bænum að hafa samband við skemmtistaðinn og fá sannleikan staðfestann."

Og Björgvin segir að sér fallist hendur gagnvart netníðingumn og rógberum. Hann reynir þó enn að verja heiður sinn og mannorð.

,,Hið rétta í þessari makalusu sögu: Ég hef ekki komið inn á skemmtistað árum saman. Varla inn á kaffihús um miðjan dag hvað þá meira. Um hreinan uppspuna að ræða með þeim eina tilgangi að níðast á mannorði mínu og baneitra líf mitt sem mest má vera. Þennan óhroða þarf að stoppa. Draga þarf þá til ábyrgðar fyrir róginn og nafnlausa níðið á netinu sem halda úti síðunum sem gera fólki kleift að hamast á æru fólks með lygum og róguburði í skjóli nafnleyndar," bloggar Björgvin.

Og hann er tilbúinn í þann slag að breyta lögum til að rétta hlut fólks gagnvart nafnlausum netníðingum. ,,Ljóst er að verulega þarf að skýra lög um ærumeiðingar og refsiábyrgð vegna hennar og mun ég beita mér að öllu afli til þess að hún fari fram og gangi hratt," bloggar Björgvin.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.