Drífa Hjartardóttir var endurkjörinn formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á landsþinginu um helgina.
Landssamband sjálfstæðiskvenna (LS) ætlar að beita sér fyrir að samþykkt verði jafnréttisstefna innan Sjálfstæðisflokksins sem fylgt verður í öllum störfum hans. „ Það er lágmarkskrafa LS að efstu sæti framboðslista flokksins verði jafnt skipuð konum og körlum,“ segir í samþykkt sambandsins frá landsþingi þess sem haldið var um helgina í Stykkishólmi.
Þar var einnig samþykkt ályktun þar sem LS fagnar framgögnu þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu og þeim fyrirvörum sem samþykktir voru við óviðunandi frumvarp ríkisstjórnarinnar frá því í sumar.
Landssambandið leggur einnig áherslu á að Alþingi sýni viðlíka samstöðu í því erfiða verki sem framundan er við fjárlagagerð. LS telur að svigrúm sé til niðurskurðar í ríkisfjármálunum og að forðast verði skattahækkanir í lengstu lög enda þoli heimilin í landinu ekki frekari álögur. Í ályktun Landssambandsins er fólk minnt á að huga að nærumhverfi sínu og nágrönnum í þeim erfiðleikum sem margir glíma við.
Á landsþinginu var kjörin ný stjórn og Drífa Hjartardóttir, fyrrverandi þingmaður, endurkjörinn formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna