ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Jón Daníelsson: Traust á Íslandi eykst

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:13 › 6. september 2009

Jón Daníelsson, prófessor í fjármálum við London School of Economics, er bjartsýnn á að Íslendingum takist að vinna sig upp úr efnahagslegu skipbroti á næstu misserum og telur að botninum verði náð í byrjun næsta árs.

Jón var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í Ríkissjónvarpinu fyrir stundu.

Þar sagði Jón skilning erlendra fjárfesta á stöðu Íslands vera að aukast, og þar með traust á Íslandi. Því samfara sé efi um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé nauðsynlegur til að aðstoða Íslendinga við að ná sér á rétt strik.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var harðorður í garð AGS áður en hann komst í ríkisstjórn og krafðist þess meðal annars að síðasta ríkisstjórn myndi skila láninu sem sjóðurinn veitir okkur. Viðhorf Steingríms í garð sjóðsins hefur þó heldur mildast eftir að hann settist á ráðherrastól.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.