ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Hröktu þjófana á brott

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:00 › 6. september 2009

Þjófar reyndu að brjótast inn í íbúðarhúsnæði í Austurborginni í nótt en íbúar hússins vöknuðu við umgang þjófanna og hröktu þá á brott áður en þeir komust inn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Í Kópavogi var brotist inn í tvær bifreiðar og stolið staðsetningartækjum. Eigendur bifreiðar eru beðnir um að skilja ekki eftir lausamuni eftir í bifreiðum sínum en þjófar sækja í slík verðmæti. Að öðru leyti hefur verið tiltölulega rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.