Sex mánuðir eru síðan embætti sérstaks saksóknara tók til starfa. Ekkert þeirra mála sem embættið rannsakar er á lokastigi. Mynd Heiða Helgadóttir
Um 460 erindi hafa borist embætti sérstaks saksóknara og hafa yfir fimmtíu manns verið yfirheyrðir eða gefið skýrslu í tengslum við rannsóknir mála. Ekkert þeirra er hinsvegar komið á lokastig rannsóknar en embætti sérstaks saksóknara hóf störf þann fyrsta febrúar síðastliðinn, eða fyrir hálfu ári.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að 36 mál séu í sérstakri málaskrá, þar af séu rúmlega 30 kærur frá Fjármálaeftirlitinu, skattayfirvöldum eða öðrum sem telja sig hafa hagsmuni að gæta. Mörg þessara mála hafa leitt til áframhaldandi rannsóknar á meðan öðrum hefur verið vísað frá.
Þá hafa yfir 30 húsleitir verið gerðar og mikið magn gagna verið haldlagt. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki greina frá því hvaða mál eru komin lengst í rannsóknarferlinu eða hvort og þá hvenær eitthvert þeirra muni leiða til ákæru.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun