Sem kunnugt er skrifaði Eiður Smári Guðjohnsen undir samning við franska liðið AS Monaco í síðustu viku. Eiður mun því flytjast búferlum frá Barcelona, þar sem hann lék í þrjú ár, til skattaparadísarinnar. DV kannaði hvaða frægu einstaklingar búa í dvergríkinu.
Ringo Starr:
Bítillinn Ringo Starr flutti til Monte Carlo í Mónakó árið 2005. Hann á þó enn glæsihús á Englandi og í Kaliforníu en var sagður hafa flutt til Mónakó til að þurfa ekki að greiða skatta af eignum sínum og tekjum.
Eva Herzigova:
Tékkneska ofurfyrirsætan Eva Herzigova á glæsilega íbúð í Monte Carlo. Rétt eins og með Ringo Starr er það ekki hennar eina heimili því hún á einnig hús í heimalandi sínu Tékklandi og í New York þar sem hún dvelur oft vegna vinnu sinnar.
Philip Green:
Philip Green er einn þekktasti kaupsýslumaður Bretlands. Hann var nokkuð í fréttum á Íslandi fyrr á þessu ári þegar greint var frá því að hann hefði áhuga á að kaupa eignir Baugs á gjafvirði. Ekkert varð þó af kaupunum. Hann á hús í Mónakó sem metið er á 880 milljónir króna.
David Coulthard:
Breski ökuþórinn David Coulthard, sem gerði garðinn frægan með McClaren-liðinu í Formúlu 1, býr í Mónakó. Þar er einmitt ein frægasta kappakstursbraut heims sem fær jafnan mikla athygli þegar keppnir fara þar fram. Ökuþórarnir Jenson Button og Jaques Villeneuve eiga einnig húsnæði í Mónakó.
Shirley Bassey:
Velska söngkonan Shirley Bassey nýtur lífsins í Mónakó en hún er komin á áttræðisaldur. Hún er ein dáðasta söngkona Bretlands og söng meðal annars lögin fyrir James Bond-myndirnar Goldfinger, Diamonds are Forever og Moonraker.
Roger Moore:
Mónakó og James Bond virðast eiga margt sameiginlegt. Breski leikarinn Roger Moore ver tíma sínum á sumrin í sólinni í Mónakó en á veturna býr hann í fjallaþorpinu Gstaad í Þýskalandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum