ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Fjölskylduharmleikur í Louisiana

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:31 › 6. september 2009
Maðurinn myrti fjölskyldu sína og svipti sig svo lífi.

Maðurinn myrti fjölskyldu sína og svipti sig svo lífi. Mynd Photos

Fimmtugur karlmaður skaut fyrrverandi eiginkonu sína, son sinn og tveggja ára barnabarn sitt til bana nærri bænum Holden í sveitum Louisiana-ríkis í gær. Auk þess særði maðurinn ólétta tengdadóttur sína lífshættulega en hann svipti sig lífi þegar lögreglan veitti honum eftirför á bíl sínum.

Ekki liggur fyrir hvað lá að baki árásinni. Lögreglan var kölluð að húsinu klukkan hálf ellefu í gærmorgun og fundust þar þrjú lík. Tengdadóttir mannsins var með lífsmarki og var hún flutt á sjúkrahús lífshættulega slösuð. Lögregla fann bifreið mannsins um tuttugu mínútum eftir að hringt var á lögreglu.

Þegar lögregla gaf manninum merki um að stöðva skaut hann sig til bana.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.