Grunur leikur á að skipið hafi verið hlaðið vopnum sem áttu að komast í hendur uppresinarmanna í Íran.
The Arctic Sea, draugaskipið sem hvarf sporlaust fyrir mánuði, var með vopn innanborðs sem átti að flytja til Írans. Mossad, leyniþjónusta Ísraels, átti hlut að máli og leikur grunur á að vopnin hafi átt að komast í hendur uppreisnarmanna í Íran, samkvæmt frétt í breska blaðinu Sunday Times í dag.
Mikil leynd hefur hvílt yfir farmi skipsins en fyrst var greint frá því að það væri að flytja timbur frá Finnlandi til Alsír. Þann 24. júlí tilkynnti áhöfn skipsins tíu vopnaðir enskumælandi menn hafi komið um borð og sagst vera fíkniefnalögreglumenn.
Eftir það spurðist ekkert til skipsins, eða allt til 17. ágúst, þegar það fannst við strendur vestur-Afríku. Síðan þá hafa rússnesk yfirvöld kært átta menn frá Eistlandi, Lettlandi og Rússlandi fyrir að hafa rænt skipinu. En ísraelskir og rússneskir embættismenn, segja samkvæmt heimildum Sunday Times, að skipið hafi verið að flytja S-300 flugskeyti til Írans og farminum hafi verið komið fyrir í skipinu þegar það kom við í Kalíngrad.
Ísraelska leyniþjónustan er sögð hafa tilkynnt rússneskum yfirvöldum að skipsendingin hafi verið seld fyrrverandi herforingjum á svörtum markaði. Rússar hafi þá ákveðið að senda björgunarleiðangur af stað til að finna skipið aftur. Því virðist ísraelska leyniþjónustan hafa átt hlut að máli en mikil spenna hefur ríkt milli stjórnvalda í Íran og Ísraels.
Heimildarmaður Sunday Times úr rússneska hernum velkist ekki í vafa um að skipið hafi verið að flytja vopn til Írans. Hann bendir á að mjög einkennilegt sé að allt það fjaðrafok, sem orðið hefur vegna hvarfs skipsins, tengist timburfarmi. Hann bendir á að Shimon Perez, forsætisráðherra landsins, hafi gert sér ferð til Rússlands, degi eftir að skipið fannst.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung