ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Bróðir meints fjöldamorðingja: „Hann er saklaus“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:24 › 6. september 2009
Guy Heinze hefur verið ákærður fyrir að myrða átta fjölskyldumeðlimi sína.

Guy Heinze hefur verið ákærður fyrir að myrða átta fjölskyldumeðlimi sína.

Tyler Heinze, sextán ára gamall bróðir Guy Heinze, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða fjölskyldu sína, segir að bróðir sinn sé saklaus. Það var um síðustu helgi sem Guy Heinze hringdi í neyðarlínuna og tilkynnti að hann hefði komið að átta fjölskyldumeðlimum sínum látnum.

Guy var handtekinn eftir að hann tilkynnti morðin til lögreglu. Honum var hinsvegar sleppt skömmu síðar en á föstudag var gefin út ákæra á hendur honum vegna morðanna sem áttu sér stað í hjólhýsi fjölskyldunnar nærri Brunswick í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum.

„Ég veit að bróðir minn gerði þetta ekki. Hann er saklaus,“ sagði Tyler Heinze þegar fjölskyldan var borin til grafar í samtali við AP-fréttastofuna. „Það voru aldrei notuð eiturlyf á heimilinu og ég veit að bróðir minn gerði þetta ekki,“ sagði Tyler og bætti við að líklega hafi einhver reynt að ræna fjölskylduna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.