ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Bloggarar gætu fengið fimm ára dóm

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:07 › 6. september 2009
Á blaðamannafundinum var maður, i asnabúningi, látinn lofsyngja kosti þess að búa í landinu.

Á blaðamannafundinum var maður, i asnabúningi, látinn lofsyngja kosti þess að búa í landinu.

Tveir bloggarar gætu átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi eftir að hafa gert lítið úr stjórnvöldum í Azerbaijan. Mennirnir, sem heita Adnan Hajizade og Emin Milli tóku upp blaðamannafund, þar sem maður í asnabúningi, lofsöng kosti þess að búa í landinu.

Þeir sem horfðu á fundinn áttuðu sig þó á því að þarna var verið að hæðast að yfirvöldum. Á fundinum kom þó til átaka þar sem nokkrir slösuðust. Segja stjórnvöld að bloggararnir tveir beri ábyrgð á slagsmálunum og handtaka þeirra tengist blaðamannafundinum ekki.

Lögmaður annars mannanna segir þó að enginn vafi leiki á því að um pólitíska handtöku hafi verið að ræða. Undir það tekur Elsa Vidal, yfirmaður samtakanna Blaðamenn án landamæra, sem segir að rit-, prent-, og tjáningarfrelsi í landinu sé fótum troðið. Hún hvetur stjórnvöld í landinu til að sleppa mönnunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.