Fjögurra barna faðir sem hefur játað að nauðga og misþyrma ungum stúlkum segist hafa fundið Guð og óskar eftir því við yfirvöld í Queensland að hann verði „geldur“ með lyfjum.
Bandaríski fjölskyldufaðirinn Stephen Kennedy var á föstudag dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir að nauðga stúlkum allt niður í þriggja ára aldur. Kennedy tók nauðganirnar upp á myndband. Auk þess fundust í fórum hans 67 þúsund barnaklámmyndir.
Við réttarhöldin í síðustu viku lagði verjandi Stephens fram beiðni hans um að fá lyf sem draga úr framleiðslu kynhormóna og minnka áhuga á kynlífi. Verjandinn segir Stephen vera tilbúinn að láta gelda sig á þennan hátt til að koma í veg fyrri að hann brjóti af sér aftur.
Yfirvöld í Queensland styðja almennt lyfjageldingu til að minnka kostnað við eftirlit með kynferðisafbrotamönnum.
Samtökin Braveheart sem berjast fyrir verndun barna hafa hins vegar gefið út að þau telji þessa beiðni Stephens vera lævísa leið til að losna fyrr út úr fangelsi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung