ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Amma hótaði að sprengja skóla

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:36 › 6. september 2009
Konan var handtekin og hefur verið kærð fyrir uppátækið.

Konan var handtekin og hefur verið kærð fyrir uppátækið. Mynd Photos

Lögreglan í San Antonio í Bandaríkjunum handtók 51 árs gamla konu eftir að hún hótaði að sprengja skóla í borginni í loft upp. Barnabörn konunnar eru nemendur í skólanum en henni hafði fyrr um daginn verið meinað að heimsækja barnabörnin í skólann.

Konan brást ókvæða við, strunsaði heim til sín og hringdi í skólann þar sem hún sagðist hafa komið fyrir sprengju. Skólinn var rýmdur í flýti en í honum voru 700 nemendur. Að sögn lögreglu hefur konan verið kærð fyrir hótunina en skólayfirvöld neituðu konunni að heimsækja barnabörnin þar sem hún hafði ekki leyfi frá móður þeirra. Engin sprengja fannst.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.