ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Prúðbúnir leikhúsgestir komu að luktum dyrum

20:49 › 5. september 2009
Leikhúsgestir komu að luktum dyrum í Loftkastalanum í kvöld.

Leikhúsgestir komu að luktum dyrum í Loftkastalanum í kvöld. Mynd DV

Prúðbúnir leikhúsgestir komu að luktum dyrum þegar þeir ætluðu á sýninguna Fúlar á móti í Loftkastalanum í kvöld. Einn þeirra hafði samband við DV.is og segir að um tuttugu manns hafi beðið fyrir utan húsið, sem hafi verið læst þegar að var komið.

Fóru á Karla sem hata konur
„Þetta er mjög svekkjandi. Við vinkonurnar fórum út að borða í kvöld fyrir sýninguna, en komum síðan að luktum dyrum. Engin tilkynning var á hurðinni um að sýningin félli niður eða neitt gert til að láta leikhúsgesti vita,“ segir Kristín Stefánsdóttir athafnakona sem ætlaði á sýninguna ásamt sex vinkonum. Vinkonurnar, sem höfðu greitt fyrir miðana, fóru grautfúlar í staðinn í bíó til að sjá myndina Karlar sem hata konur.

Mjög leiðinlegt
María Sigurðardóttir, leikstjóri sýningarinnar, var í öngum sínum þegar DV.is hafði samband. Hún segir að það hafi verið búið að ákveða að fella sýninguna niður, þar sem búið var að selja tiltölulega fáa miða. Vegna þess hafi átt að vera búið að hringja í alla og bjóða þeim að koma á sýningu sem verður annað kvöld.

„Þetta er bara mjög leiðinlegt. Við vorum búin að láta þá (Loftkastalann) vita og þeir lofuðu að hringja út í alla sem áttu pantað og bjóða þeim annað kvöld,“ segir María. Einhverra hluta vegna var það hinsvegar ekki gert. „Ég er alveg í mínus og þetta er bara mjög leiðinlegt. Auðvitað á að vera skilti í glugganum sem segir að vegna óviðráðanlegra orsaka falli sýningin niður. Ég á eftir að hringja persónulega í þetta fólk og biðja það afsökunar á þessu,“ segir María að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.