ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Var Garrido raðmorðingi?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:22 › 4. september 2009
Lögreglan í Reno rannskar nú hvort hugsanleg tengsl séu á milli óupplýstra morða á ungum stúlkum og mannræningja Jaycee Lee Dugard, Phillip Garrido.

Lögreglan í Reno rannskar nú hvort hugsanleg tengsl séu á milli óupplýstra morða á ungum stúlkum og mannræningja Jaycee Lee Dugard, Phillip Garrido.

Lögreglan í Reno í Nevada rannsakar nú hvort Phillip Garrido, maðurinn sem rændi Jaycee Lee Dugard árið 1991, beri ábyrgð á tveimur morðum á ungum stúlkum árið 1989 og fleiri dularfullum og óupplýstum mannshvörfum.

Eins og komið hefur fram var Jaycee Dugard aðeins ellefu ára gömul þegar hún hvarf. Hún kom hinsvegar fram í dagsljósið fyrir skemmstu en Garrido nauðgaði henni og átti með henni tvö börn. Jaycee var numin á brott á strætisvagnabiðstöð í Kaliforníu.

Stúlkurnar tvær, sem voru sex og sjö ára gamlar þegar þeim var rænt, var einmitt rænt innan við hundrað metrum frá þessari sömu biðstöð árið 1989. Þær fundust látnar níu mánuðum síðar um 100 kílómetrum norðvestur af Reno. Þá var Garrido nýsloppinn úr fangelsi eftir að hafa nauðgað 25 ára gamalli konu árið 1976.

Þetta er ekki allt því enn er óupplýst mál sjö ára gamallar stúlku sem var numin á brott frá heimili sínu árið 1990. Lík hennar fannst þremur vikum síðar og átti ránið sér stað ekki langt frá heimili Garrido á þeim tíma. Morðinginn hefur ekki fundist.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.