Lögreglunni barst tilkynning frá nýbökuðum foreldrum sem sökuðu hjúkrunarfræðing um vítavert gáleysi.
Lögreglan í sveitarfélagi á Suðurlandi fékk þann 21. ágúst síðastliðinn tilkynningu um að drukkinn hjúkrunarfræðingur hefði mætt til að sinna ungbarnaeftirliti á tveggja daga gömlu barni hjá nýbökuðum foreldrum í viðkomandi bæjarfélagi.
Samkvæmt heimildum DV var það um tvöleytið eftir hádegi, föstudaginn 21. ágúst, sem hjúkrunarfræðingurinn sækir hina nýbökuðu foreldra heim til að sinna ungbarnaeftirliti. Móðurina grunar að ekki sé allt með felldu og kemur barni sínu undan á meðan faðirinn hringir á lögregluna sem mætir á vettvang og handtekur konuna.
Hjá viðkomandi lögregluembætti fengust þær upplýsingar að um gríðar viðkvæmt mál væri að ræða. Þegar frásögnin sem DV hefur heimildir fyrir var borin undir lögregluna vildi hún lítið tjá sig um einstaka málsatvik, aðeins að „leiðindarmál hafi komið upp sem búið væri að afgreiða.“ Lögreglan staðfesti að konan sem handtekin var hafi verið ölvuð.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir