Nancy Garrido segir að hún sakni og elski stelpurnar tvær sem eiginmaður hennar eignaðist með Jaycee Lee Dugard sem þeim hjónunum er gefið að sök að hafa rænt fyrir 18 árum og haldið fanginni.
Nancy lítur á stelpurnar, Starlet 15 ára og Angel 11, sem hluta af fjölskyldu sinni. Þetta sagði hún við lögfræðing sinn Gilbert Maines sem segir við fjölmiðla að skjólstæðingur sinn sé viti sínu fjær, hrædd og áttavillt eftir að hafa verið handtekin í síðustu viku. Hann óttast að hún muni ekki eiga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum vegna áhuga fjölmiðla á málinu.
Nancy giftist Phillip Garrido þegar hann sat í fangelsi á sínum tíma fyrir mannrán og nauðgun á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Hann var dæmdur í 50 ára fangelsi en sat aðeins inni í tíu. Hún er sökuð um að hafa aðstoðað hann við mannránið á Jaycee.
„Hún er eins og stýrislaust skip. Hún segir að hún hafi farið að líta á stúlkurnar tvær og Jaycee sem fjölskyldumeðlimi. Og hún elskaði þær afar heitt, Jaycee sömuleiðis,“ segir Maines í samtali við CBS-fréttastofuna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung