ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Jaycee sakbitin vegna mannránsins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:47 › 3. september 2009
Jaycee Lee Dugard áður en henni var rænt fyrir átján árum.

Jaycee Lee Dugard áður en henni var rænt fyrir átján árum.

Jaycee Lee Dugard þjáist af mikilli sektarkennd yfir mannráninu á sér en henni var rænt af Phillip Garrido og eiginkonu hans Nancy árið 1991 og haldið fanginni í 18 ár. Þetta hefur amma hennar eftir móður Jaycee. „Hún er sakbitin yfir því að hafa látið ræna sér og fyrir að hafa ekki haft samband við foreldra sína öll þessi ár. Henni þykir fyrir því að láta foreldra sína hafa haft áhyggjur af sér. Ég grét þegar ég heyrði þetta,“ segir Wilma Probyn, amma Jaycee Lee Dugard.

Fjölskyldan er hins vegar í skýjunum með að hafa endurheimt Jaycee og rifja nú upp gamla tíma. Jaycee hefur verið flutt ásamt dætrum sínum tveim til San Francisco þar sem sérfræðingar vinna í að koma þeim aftur út í samfélagið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.