ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tortímir Íslandi“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:03 › 3. september 2009
Nathan Lewis segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé af hinu illa. Hann sé stofnun, sem beri að afnema.

Nathan Lewis segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé af hinu illa. Hann sé stofnun, sem beri að afnema. Mynd DV

„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn starfar aðallega sem peningamaskína. Þeir lokka, tæla, rugla og hóta stjórnmálaleiðtogum um allan heim til að borga af mislukkuðum veðum stóru bankastjóranna með skattfé borgaranna. Þetta hefur viðgengist lengi, eða allt frá níunda áratug síðustu aldar.“

Svona hefst grein sem Nathan Lewis sjóðsstjóri og pistlahöfundur ritar á vef Huffington Post í dag. Greinin er undir yfirskriftinni Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tortímir Íslandi og Lettlandi.

Öfgafull nýfrjálshyggjutilraun
Í grein sinni vitnar Lewis í orð Michael Hudson hagfræðiprófessorsins,sem heimsótti Ísland eftir hrunið. Hudson sagði í grein á vefsíðunni Counterpunch þann 18. ágúst að líkja mætti Íslandi við öfgafulla nýfrjálshyggjutilraun með hinn frjálsa markað. Lewis segir að íslensk stjórnvöld hafi fengið skýr skilaboð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum; skipta einkaskuldum út fyrir opinberar skuldbindingar, hækka skatta, minnka útgjöld í þágu almennings og aðstoða skattgreiðendur við að ganga á sparifé sitt.

Af hverju þurfa Íslendingar að borga?
Lewis gerir Icesave-samkomulagið að umtalsefni í greininni og spyr hvers vegna í ósköpunum einhver, sem átti engan þátt í gerð Icesave-reikninganna, þurfi að borga fyrir tapið bara vegna þess eins að hann býr á Íslandi og er Íslendingur. Hann bendir á ekki sé útséð með það hvort ríkissjóður geti staðið undir skuldbindingunum. Peningana þurfi að fá að láni og þá komi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til sögunnar. Og það sem sjóðurinn kalli neyðarlán til yfirvalda komi peningarnir í raun alls ekki til Íslands. Þeir fari beinustu leið til skuldareiganda, sem í flestum tilfellum eru á stöðum á borð við New York eða London.

Skattahækkanir gera illt verra
Lewis segir að skuldin sem stendur eftir sé greidd af skattgreiðendum á Íslandi. Það sé gert með skattahækkunum sem geri slæmt efnahagsástand enn verra. Klippt sé á verðmæta og mikilvæga þjónustu – akkúrat á þeim tíma sem hennar er þörf. Þá komi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til sögunnar og setji fram fullt af kröfum.

Ríkiseigur seldar?
Lewis tekur sem dæmi að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti gert þá kröfu að selja ríkiseigur og eigur gömlu bankanna, sem enn séu þó nokkuð verðmætar, til að borga af lánum sem notuð voru til að borga skuldareigendum í New York og London. Og hann spyr hver ætti að vilja kaupa þessar ríkiseigur?

Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þarf að leggja niður
Þar komi aftur til sögunnar bankastjórarnir í New York og London. Þar geti þeir gert góð kaup – jafnvel mjög góð kaup á einstaklega góðu verði. Hann bendir á að í kreppu fáist eignir yfirleitt á góðu verði og það sé sú staða sem gæti komið upp á Íslandi. Ríkiseigur verði seldar á verði sem einkaeigendur myndu aldrei sætta sig við. Lewis segir að lokum að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé stofnun sem beri að afnema.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.