ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Leynilegar upptökur með útrásarvíkingum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:50 › 29. september 2009
Jón Ásgeir Jóhannesson er sagður vera ósáttur með leynilegar upptökur.

Jón Ásgeir Jóhannesson er sagður vera ósáttur með leynilegar upptökur.

Í heimildarmyndinni Guð blessi Ísland eru viðtöl við þekkta útrásarvíkinga sem lýsa sinni upplifun af hruni Íslands. Leikstjóri myndarinnar, Helgi Felixson, segir að hluti myndarinnar hafi verið tekinn upp leynilega fyrir og eftir að viðtölin áttu sér stað.
Meðal þeirra sem rætt er við í myndinni eru Björgólfur Thor Björgólfsson, Bjarni Ármannsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Helgi sagði að Jón Ásgeir hefði krafist þess að efni sem tekið væru upp leynilega yrði fjarlægt. Þetta kom fram í Ríkissjónvarpinu
Helgi sagði að hann hefði gert samninga við viðmælendur sína um að þeir fengju að sjá hvernig viðtölin væru matreidd í myndinni. Það hefði hann staðið við gagnvart Jóni Ásgeiri sem hefði brugðist illa við. Mátti skilja á leikstjóranum að hann væri beittur þrýstingi af Jóni Ásgeiri til að klippa hann út úr myndinni.
Helgi upplýsti í Ríkissjónvarpinu að enginn þeirra útrásarmanna sem hann ræddi hefðu hefðu sýnt iðrun eða séð sök hjá sér á því hvernig fór. Þá hafi Björgólfur Thor, fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans, ekki talið að IceSave væri vandamál.
Myndin Guð blessi Ísland verður frumsýnd á ársafmæli hrunsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.