Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Um hálf tvö leytið í nótt barst lögreglunni á Selfossi tilkynning frá öryggisverði Securitas um yfirstandandi innbrot í gróðurhús í Hveragerði. Á meðan á samtalinu stóð greindi öryggisvörðurinn frá því að maður hefði komið að honum með exi í hönd. Tvær lögreglubifreiðar voru sendar á vettvang.
Öryggisvörðurinn reyndist heill á húfi en maðurinn sem var að athafna sig við gróðurhúsið var á bak og burt. Við gróðurhúsið fundu lögreglumenn tösku á hjólum með ýmsum búnaði og verkfærum til að nota við innbrot.
Maðurinn hafði náð að brjóta eina rúðu og greinilega ætlað sér að stela gróðurhúsalömpum en orðið frá að hverfa þegar öryggisvörðurinn kom, segir í tilkynningu lögreglu. Maðurinn hefur ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna