ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

„Þorði ekki að gefa frá mér hljóð“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:46 › 28. september 2009
  • Jósef leitaði sér aðstoðar hjá Stígamótum í fyrra.

    Jósef leitaði sér aðstoðar hjá Stígamótum í fyrra.Mynd Rakel Ósk

„Um tveggja ára skeið var ég misnotaður kynferðislega af manninum. Hann var drukkinn í öll skiptin og vakti mig þar sem ég lá sofandi í rúminu mínu. Ég var svo hræddur að ég þorði ekki að gefa frá mér hljóð eða kalla á hjálp, ég þagði og lét þetta yfir mig ganga," segir Jósef Gunnarsson í viðtali við Vikuna. Hann er nú 28 ára en var misnotaður í æsku og berst enn við afleiðingarnar.

Jósef hefur lengi barist við þunglyndi en segir sögu sína í nýjasta tölublaði Vikunnar í von um að það verði skref til bata og geti jafnvel hjálpað öðrum.

Þegar hann var í kringum átján ára ákvað hann að svipta sig lífi. Honum hafði liðið mjög illa um tíma og sá ekkert framundan. Vonleysið var algjört. Hann skrifaði kveðjubréf til móður sinnar og var byrjaður að skera sig á púls þegar honum snerist hugur. „Ég veit að það er meira hugrekki fólgið í því að lifa áfram en að kveðja lífið í svona mikilli vanlíðan og er stoltur af mér að hafa ekki gefist upp,“ segir Jósef.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.