ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Sökuð um að falbjóða son sinn fyrir bensínpening

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:57 › 28. september 2009
Hann er dýr bensíndropinn en tæplega svo dýr að selja þurfi börnin fyrir honum.

Hann er dýr bensíndropinn en tæplega svo dýr að selja þurfi börnin fyrir honum.

37 ára kona var handtekin í Melbourne í Flórída eftir að vörubílstjóri tjáði lögreglu að hún hefði boðið honum að kaupa barnið sitt á föstudaginn var. Vantaði konuna víst peninga fyrir bensíni á bílinn.

Marcy Pappalardo á yfir höfði sér ákæru fyrir vanrækslu á barni en lögreglan í Melbourne rannsakar nú málið.

Vörubílstjórinn hafði lagt trukk sínum við bensínstöð þegar Pappalardo vatt sér upp að honum og bauðst til að selja honum sex ára gamlan son sinn í skiptum fyrir bensínpeninga. Vörubílstjórinn neitaði að gangast við tilboði konunnar og elti hana þess í stað og hringdi á lögregluna.

Mallory Acker, sem var í bílnum með Pappalardo, hefur hins vegar aðra sögu að segja. Acker segir að vörubílstjórinn hafi boðið Pappalardo peninga í skiptum fyrir kynlífsgreiða.

„Þegar hún neitaði þá bjó hann til þessa sögu fyrir lögregluna,“ segir Acker.

Hinum sex ára dreng hefur verið komið fyrir hjá föður sínum en lögreglan rannsakar nú hvor fari með rétt mál, vörubílstjórinn eða vitnið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.