Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Á laugardagsmorgun var tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi að skotið hefði verið með riffli á upplýsingatöflu sem er við Kolholtsveg í Flóahreppi. Lögreglan veit ekki hver var þar að verki og lýsir lögreglan eftir upplýsingum varðandi verknaðinn.
Í gær stöðvaði lögreglan á Selfossi akstur bifreiðar í hefðbundnu eftirliti. Í ljós kom að ökumaðurinn var þrettán ára. Faðir drengsins var með í bifreiðinni en hann hafði leyft drengnum að aka. Í ljós kom að tryggingar bifreiðarinnar voru ekki í lagi og var faðirinn kærður fyrir að fela drengnum akstur og mun fá sekt fyrir vanrækslu á vátryggingum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna