ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Skilanefndir krafðar um gagnsæi

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
12:49 › 28. september 2009

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ritað skilanefndum gömlu bankanna bréf þar sem hún fer fram á að þær geri opnibert hvernig staðið sé að endurskipulagningu skulda fyrirtækja og hvort fylgt sér settum reglum og verklagi þegar teknar séu ákvarðanir um hvaða fyrirtæki fái að halda lífi og hver ekki.

„Margir hafa af því áhyggjur hvernig staðið verður að endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja,
hver þeirra verða knúin í þrot og hverjum hjálpað til þess að ganga í endurnýjun lífdaga með
skuldbreytingum og afskriftum. Krafan er um það að þetta ferli í bönkunum verði fyrir opnum
tjöldum og fari eftir skráðum reglum og viðmiðum en ekki geðþótta,“ sagði Jóhanna á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar síðastliðinn laugardag.

„Það verður að vera hægt að ganga úr skugga um að fylgt sé eðlilegum samkeppnis- og jafnræðissjónarmiðum. Ég hef líka óskað svara um það hvort settar hafi verið reglur um launamál í bönkunum og um jafnrétti kynjanna. Ég sætti mig ekki við annað en að þetta sé allt á hreinu í nýju og betra samfélagi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.