ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Ritstjóri harmar óviðeigandi auglýsingu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:21 › 28. september 2009
Halldóra Anna Hagalín.

Halldóra Anna Hagalín.

„Stefna tímaritsins Júlíu er að vera með heilnæmt efni fyrir unglingsstúlkur og að auglýsingar í blaðinu styðji það,“ segir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri tímaritsins Júlía, um leið og hún biðst velvirðingar á því að fyrir mistök slæddist auglýsing um líkamsrækt við danssúlu í fyrsta tölublað tímaritsins.

„Í fyrsta tölublaði Júlíu birtist auglýsing sem er í raun í tvennu lagi, annars vegar er auglýsing um magadansnámskeið meðal annars fyrir krakka en hins vegar auglýsing sem ætluð er eldra fólki og auglýsir súludans og súlufitness. Sá hluti sem auglýsir súludans og –fitness á ekki heima í Júlíu en fór því miður framhjá okkur þegar blaðið fór í prent,“ segir Halldóra.

„Sem ritstjóri Júlíu biðst ég afsökunar á þessum mistökum. Ég get með sanni sagt að við, aðstandendur blaðsins, höfum lært af þessum mistökum og að þetta muni ekki koma fyrir aftur. Einnig vona ég að þessi birting skemmi ekki það orðspor sem Júlía er að byggja upp sem heilnæmt og skemmtilegt blað fyrir unglingsstúlkur.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.