ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Prófarkalesari Moggans strippaði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:48 › 28. september 2009
Atli Steinn Guðmundsson fréttamaður á að baki fortíð sem strippari.

Atli Steinn Guðmundsson fréttamaður á að baki fortíð sem strippari.

,,Ég hætti á réttum tíma og hef ekki hug á því að byrja aftur," segir Atli Steinn Guðmundsson, morgunfréttamaður á Bylgjunni fyrrverandi starfsmaður Morgunblaðsins, í samtali við Séð og Heyrt um þann tíma sem hann starfaði sem strippari. Atli sem í dag er harðgiftur einstaklingi af gagnstæðu kyni starfaði meðal annars á hommastað í Hamburg og víðar í Þýskalandi. Rúm 10 ár eru síðan hann lét af strippinu en síðan hefur hann haslað sér völl sem fréttamaður á Vísi og Bylgjunni. DV fjallaði um Atla Stein á dögunum en hann og kona hans hafa eins og fleiri Íslendingar hætt að borga af þrúgandi lánum sínum og huga að flutningi til útlanda. Atli er glaðbeittur í samtalinu við Séð og Heyrt þegar hann rifjar upp þá tíða þegar hann dansaði nakinn undir dynjandi takti Rammstein og Sálarinnar hans Jóns míns. Eftir að hafa dansað víða um Evrópu komu hann og félagi hans til Íslands og sýndu þar danslist sína. Þá var Atli starfsmaður Morgunblaðsins.
,,Einhvern tímann var ég á kvöldvakt hjá Mogganum þegar ég var í próförkinni þar og skaust frá í hálftíma til að dansa fyrir hjúkrunarnema við HÍ."
Ítarlegt viðtal er við Atla í nýjasta hefti Séð og Heyrt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.