ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Persónukjör stjórnarinnar er sjónhverfing

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:25 › 28. september 2009

„Flokkarnir eru hræddir við kjósendur. Þeir treysta ekki kjósandanum til þess að velja fulltrúa sína og ríghalda í kosningafyrirkomulagið sem hefur verið í gildi síðustu hálfa öldina,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður. Hann gagnrýnir harkalega tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á kosningalögum og segir persónukjörið þar vera sjónhverfinu.

Kristinn skrifar á bloggsíðu sína um hvernig spilling hafi viðgengist í stjórnmálaflokkunum. „Einkavæðing ríkisfyrirtækja er skýrasta dæmið um það. Framsalið í kvótakerfinu er annað. Það má líka benda á sveitastjórnarstigið. Fjársterkið aðilar hafa sett mikið fé í kosningasjóði einstakra frambjóðenda og flokka svo sem fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Það er ekki einleikið hvað tregðan við að gera opinskátt hverjir greiddu og hve mikið í framboð einstaklinga er mikil og vettlingatök flokkanna á málinu eru átakanleg. Á eftir framlögunum í kosningasjóðina kom REI málið.“

Kristinn segir að allar leiðir til úrbóta og endurreisnar þjóðfélagsins liggi í gegnum stjórnkerfið. Þess vegna sé fyrsta verkefnið að koma þar á heilbrigðu ástandi. Ríkisstjórnin hefur kynnt hugmyndir um persónukjör en þær hugmyndir hitta ekki í mark hjá Kristni. „Hitt er misskilningur hjá ríkisstjórninni að frumvörpin boði nauðsynlegar úrbætur. Persónukjörið, sem þar er teiknað upp , er sjónhverfing og verndar gamla flokksræðið. Enda eru frumvörpin samin af flokkunum og fyrir flokkana. Breytingarnar eru svo litlar að flokkarnir hafa áfram öll tök á málum. Kjósandanum er aðeins veitt val milli þeirra sem flokkurinn velur fyrir hann. Þykir þó sumum nóg um og Samband íslenskra sveitarfélaga vill að sveitarstjórnarmennirnir sjálfir ákveði hvort kjósendum þeirra er treystandi fyrir þessu takmarkaði valfrelsi.“

„Í síðustu alþingiskosningum urðu straumhvörf,“ segir Kristinn. „Kjósendur sýndu sjálfstæði sitt og kröfu um breytingar á þann hátt að ekki verður misskilið. Fylgi flokkarnir ekki eftir þeim kröfum og breyti sjálfum sér munu nýir flokkar yfirtaka hlutverk þeirra. Flokksræðið er krabbameinið í íslenskum stjórnmálum sem þarf að uppræta.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.