ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

„Náttúran að kenna mönnum“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:42 › 28. september 2009

„Náttúran að kenna mönnunum að það sé skynsamlegra að flytja nokkur hús heldur en heil fjöll! Skyldi Traðarhyrnan glotta við tönn núna?,“ segir bolvíski leikarinn Pálmi Gestsson á Facebook-síðu sinni eftir að 15 til 20 metra kafli af útvegg snjóflóðavarnargarðsins í Bolungarvík hrundi aðfaranótt föstudags að því fram kemur á vef ísfirska fréttamiðlsins Bæjarins besta.

Talið er að net með grjóthleðslu hafi gefið sig með þeim afleiðingum að hrun hafi orðið. Skemmdin er fjallmegin á garðinum og ekki sýnileg þeim sem aka framhjá en starfsmenn tóku eftir þessu þegar þeir mættu í vinnu á laugardagmorguninn. Einhvern tíma mun taka að gera við skemmdina en ekki er búið að meta hve mikið tjónið er.

Pálmi hefur verið mikill andstæðingur snjóflóðavarnargarðsins og segir þetta vera mikil náttúruspjöll sem unnin séu á fjallshlíðinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.