ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Fann fyrir létti þegar hann lést

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:46 › 28. september 2009
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona missti barnsföður sinn, eftir að hann hafði liðið fyrir eftirköst heilablóðfalls í tvö ár.

Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona missti barnsföður sinn, eftir að hann hafði liðið fyrir eftirköst heilablóðfalls í tvö ár.

  • Elva Ósk lýsir erfiðri reynslu sinni af einlægni í viðtali við Nýtt líf.

    Elva Ósk lýsir erfiðri reynslu sinni af einlægni í viðtali við Nýtt líf.

„Honum leið illa og hann grét mikið. Það var skelfilegt að horfa á hann svona, hann sem var alltaf svo flottur og með svo sterka sjálfsmynd. Það er engum greiði gerður með því að vera haldið á lífi, algjörlega ósjálfbjarga,“ segir leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir í einlægu viðtali við tímaritið Nýtt Líf en hún missti manninn sinn og báða foreldra sína á aðeins átta árum.

Barnsföður sínum, Andra Erni Clausen leikara, kynntist Elva Ósk þegar hún sótti um inngöngu í Leiklistarskólann. Þau byrjuðu ung að búa og þegar Elva var aðeins 23 ára greindist Andri með krabbamein í eistum. Annað eistað var fjarlægt og allt gekk vel þar til árið 1998 þegar hann fékk aftur krabbamein og þá í eitlana.

Árið 2000 fékk Andri svo heilablæðingu. „Hann hafði kvartað undan höfuðverk, svo slæmum að honum fylgdu uppköst. Hann átti tíma hjá lækni á mánudegi. Við vorum heima á sunnudegi og það var eins og hann fengi skot í höfuðið. Hann missti meðvitund og datt. Ég hringdi í 112, beitti blástursmeðferð og tókst að koma önduninni aftur af stað.“

Andri lá í dái í nokkra mánuði og var langt frá því að vera sami maður og áður þegar hann komst aftur til meðvitundar. „Hann vaknaði til lífsins, en hann var ekki lifandi. Fyrir mér og börnunum dó hann í ágúst 2000, en svona lifði hann í tvö ár, rúmfastur, fékk alla næringu í gegnum slöngu, var ósjálfbjarga og út úr heiminum. Hann dó svo árið 2002 og það var mikill léttir fyrir mig og börnin. Það er erfitt að segja þetta, en svona var það,“ segir Elva sem kýs að horfa fram á veginn í stað þess að velta sér upp úr því sem hún fær ekki breytt.

Fjórum mánuðum eftir heilablóðfallið féll hún fyrir öðrum manni og fylgdi hjarta sínu þrátt fyrir skoðanir annarra. „Ég fékk að heyra það og fann fyrir illum tungum, en mér var bara alveg sama. Þetta er mitt líf, ég fylgi mínu hjarta og það sem öðrum finnst er þeirra vandamál en ekki mitt,“ segir Elva í viðtalinu við Nýtt líf.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.