ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Greiðslubyrði lækkar um 100 þúsund á mánuði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:55 › 28. september 2009
Árni Páll Árnason vinnur að lausn á vanda húsnæðiseigenda.

Árni Páll Árnason vinnur að lausn á vanda húsnæðiseigenda. DV-mynd Sigtryggur Ari

Greiðslubyrði þeirra sem tóku 20 milljóna króna myntkörfulán fyrir tveimur árum lækkar að líkindum um nærri 100 þúsund krónur, nái áætlanir Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra fram að ganga.
Til stendur að færa greiðslubyrði gengistryggðra lána aftur til þess sem þau voru í maí 2008, fyrir mesta gengishrunið. Enn er þó verið að reyna að semja við fjármálastofnanir um nákvæma dagsetningu.

Greiðslubyrði verðtryggðra lána verður einnig færð aftur til þess sem hún var snemma í fyrra. Slíkt gæti lækkað greiðslubyrði fólks um tugi þúsunda króna. Afborganirnar munu svo, ef um það semst, fylgja launa- og atvinnuþróun í landinu, en ekki verðlagi eins og hingað til. Það sem eftir stendur, þegar samningstíminn er búinn auk lítilsháttar lengingar, verður þá afskrifað að sögn ráðherra.

„Það er auðvitað þannig að almennar niðurfærslur á þessum tímapunkti eru illframkvæmanlegar. Það er vegna þess að við vitum ekki hvert heildartjónið af þessu áfalli verður,“ segir Árni Páll og bætir við: „Eina vitræna leiðin er að horfa á greiðslugetu fólks og auðvelda fólki að standa í skilum, auk þess að veita fyrirheit um að ef hér verður misgengi milli launaþróunar og verðlags til langs tíma verður mismunurinn afskrifaður,“ segir hann.

Ítarleg umfjöllun er um málið í DV á morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.