ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Könnun um morð á Obama fjarlægð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:24 › 28. september 2009
Getty.

Bandaríska leyniþjónustan rannsakar nú könnun sem var birt á Facebook en þar voru notendur síðunnar spurðir hvort ráða ætti Barack Obama, forseta, af dögum
Edwin Donovan,talsmaður leyniþjónustunnar, sagði stofnunina taka nauðsynleg skref í rannsókn vegna könnunarinnar sem var birt á laugardag en var fjarlægð í skyndi eftir að starfsmenn Facebook sáu hana.

Í könnuninni var einfaldlega spurt: „Ætti Obama að vera drepinn?“

Svaramöguleikarnir voru „Nei“, „Kannski“, „Já“ og „Já ef hann rýrir heilbrigðisþjónustu mína“.

Bob Beckel, starfsmaður Demókrataflokksins, segir þann sem setti könnunina inn ætti að vera sóttur til saka. Könnunin sé sori sem sé sóttur í hóp öfga hægri manna sem séu á móti Obama og segir Bob könnunina hafa farið langt yfir strikið.

Líki andstæðingum Obama ekki við hann ættu þeir að kjósa einhvern annan í næstu kosningum að sögn Bob, að gera slíka könnun sé ekki ásættanlegt og „ó-Amerískt“ sagði hann að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.