ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Í fallhlífastökk á 92 ára afmælinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:07 › 28. september 2009
  • Það eru ekki margir sem leggja í fallhlífarstökk. Hvað þá á tíræðisaldri.

    Það eru ekki margir sem leggja í fallhlífarstökk. Hvað þá á tíræðisaldri.

Hún lét ekki að sér hæða hin 92 ára gamla Jane Bockstruck frá New Hampshire í Bandaríkjunum sem hélt upp á afmælið sitt á dögunum með því að fara í fallhlífarstökk úr 13 þúsund feta hæð.

Bockstruck segir í samtali við dagblaðið The Keene Sentine að hún viti ekki hvað kom yfir hana þegar hún ákvað að taka stökkið.

Það var hinn 19. september sem skelkaðir ættingjar og vinir fylgdust emð Bockstuck stökka úr flugvél í Massachusetts nærri Boston. Hún kveðst ekki muna eftir því að hafa hoppað út.

Með henni í för var fallhlífastökkskennarinn Paul Peckham og hann segir þá gömlu hafa verið frábæran skjólstæðing.

Peckham segir Bockstruck vera elstu manneskju sem hann hafi stokkið með, hin hafi verið 78 ára.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.