ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Hugsanlegur leiðarendi ríkisstjórnarinnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:08 › 28. september 2009

„Eitt og annað bendir til þess að ríkisstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingar standi um þessar mundir á tímamótum,“ segir rithöfundurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson á bloggi sínu. Hann segir nýtt stjórnarmynstur geta verið að líta dagsins ljós á Íslandi, svokölluð þjóðstjórn.

Páll Ásgeir segir Icesace samkomulagið vera líklega komið aftur á algeran byrjunarreit og gæti þurft að setjast á ný að samningaborði með Bretum og Hollendingum. Hann segir að á meðan Icesave málið er ekki til lykta leitt ríkir áfram alkul í efndum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og svipað hitastig verður áfram í íslensku efnahagslífi.

„Með þessu má segja að ríkisstjórninni hafi mistekist algerlega ætlunarverk sitt og varla fýsilegt fyrir úrvinda stjórnmálamenn að hefja allan þann hvimleiða málarekstur að nýju. Þjóðin er að missa þolinmæðina og örendið ekki síður en þeir sem eiga að leiða hana og þjóðin skimar í örvæntingu út í þokuna eftir einhverju leiðarhnoða sem mætti koma henni til byggða á ný,“ segir Páll Ásgeir á bloggi sínu.

Þjóðstjórn er mynduð með fulltrúum allra flokka sem sæti eiga á Alþingi en einu sinni áður hefur þjóðstjórn verið mynduð að sögn Páls Ásgeirs en það var árið 1939 vegna yfirvofandi styrjaldar í Evrópu.

Páll Ásgeir segir þjóðstjórn geta verið tækifæri Sjálfstæðisflokksins til að sýna þroskuð vinnubrögð án þess að þurfa að axla alla ábyrgð. „Þjóðstjórn gæti komið nauðsynlegum aðgerðum á rekspöl og hugsanlega í framkvæmd án þess að þurfa að kasta sandi í augu stjórnarandstöðu og þjóðarinnar allan tímann. Þjóðstjórn gæti auðveldað Vinstri-grænum að koma málum í gegn framhjá sínu eigin villta vinstri og þjóðstjórn gæti skapað Samfylkingu ráðrúm til að koma nýjum foringja flokksins á lappirnar,“ segir Páll Ásgeir á bloggi sínu.

Hann segir augljósa galla við þjóðstjórn vera að Framsóknarmenn yrðu líklega að vera innan borðs og það þýðir þá væntanlega Sigmundur Davíð. „… svo ekki sé minnst á skæruliðana sem upphaflega voru kenndir við Borgarahreyfinguna.“

Hann telur að einhvers staðar í bakherbergjum séu menn að ræða möguleikana á þjóðstjórn í fullri alvöru og tíðinda af því gæti verið að vænta innan skamms.

„En á þessari ráðagerð er einn alvarlegur hængur. Þjóðstjórn verður ekki mynduð nema með tilstilli og atbeina forseta vors Ólafs Ragnars Grímssonar. Til þess að hann leysi slíkt verkefni farsællega þyrfti hann að hafa traust og tiltrú þjóðar sinnar en svo er ekki.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.