ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Framsókn: „Jákvætt ef rétt reynist“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:55 › 28. september 2009

Framsóknarmenn telja jákvætt ef rétt reynist að ríkisstjórnin ætli að grípa til almennra aðgerða vegna skulda heimilanna. Þingflokkur og landsstjórn flokksins funduðu sameiginlega um helgina og ályktuðu þar um stöðu efnahagsmála.

„Framsóknarmenn og fleiri hafa í 8 mánuði barist fyrir slíkum aðgerðum og ljóst að stefnubreyting ríkisstjórnarinnar yrði mikill sigur fyrir heimilin og þá sem hafa barist fyrir almennri skuldaleiðréttingu,“ segir í yfirlýsingu fundarmanna. „Framsóknarmenn leggja áherslu á nýsköpun og uppbyggingu atvinnu og hafna fyrirfram engu í þeim efnum því framtíð heimila og fyrirtækja er í húfi. Framsóknarmenn fagna því þegar frumkvæði að atvinnuuppbyggingu kemur frá heimamönnum á hverjum stað. Hlutverk ríkisstjórnar er að skapa aðstæður og styðja heimamenn. Í því ljósi harmar fundurinn að ríkisstjórnin standi ekki heilshugar að baki Norðlendingum í þeirra atvinnusköpun,“ segir í yfirlýsingu fundarins. Þar er vísað til þess að ríkisstjórnin vildi ekki framlengja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka.

„Ráðaleysi ríkisstjórnarinnar hefur verið æpandi og ljóst að heimili og fyrirtæki þola ekki lengri bið eftir aðgerðum. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa eytt dýrmætum tíma í samræðustjórnmál og yfirlýsingar, nú er kominn tími til að láta verkin tala,“ segja framsóknarmenn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.