Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í tíu og átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið saman að fíkniefnaframleiðslu. Þá var Jónas dæmdur fyrir vörslu á rúmlega 18 kg af kannabis og tæp 693 grömm af amfetamíni.
Jónas og Tindur voru handteknir í tengslum við amfetamínframleiðslu sem upprætt var í Hafnafirði á síðasta ári.
Báðir eru þekktir glæpamenn en Jónas Ingi varð frægur þegar hann var dæmdur fyrir þátt sinn í líkfundarmálinu svokallaða árið 2003 en Tindur var dæmdur fyrir stórhættulega sveðjuárás árið 2005.
Tindur hafði afplánað helming af dómi sínum þegar hann var handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald vegna amfetamínframleiðslunnar.
Europol sagði framleiðsluna eina þá fullkomnustu í Evrópu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna