Lögregla og ráðgjafar í Bretlandi voru gagnrýnd fyrir að mistakast að koma einstæðri móður og andlega fatlaðri dóttur hennar, en mæðgurnar fundust í brenndum bíl í Leicestershire fyrir skömmu. Þær höfðu sætt ofsóknum unglinga.
Lögreglan og ráðgjafarnir tveir voru gagnrýnd fyrir að sinna aldrei hjálparbeiðni mæðgnanna vegna ofsóknanna og sinnuleysi yfirvalda er talið hafa ýtt undir dauða þeirra. Móðirin drap sig og dóttur sína með því að kveikja í bíl sem þær voru í. Þær höfðu sætt ofsókna í tíu ár. Móðirin var ekki sú eina sem bað um hjálp heldur fjölskylda hennar líka og nágrannar en lögregla og yfirvöld aðhöfðust ekkert í málinu.
Sonur hennar, sem nú er nítján ára, var laminn með járnröri í andlitið. Lögreglan aðhafðist ekkert í ofsóknum á fjölskyldunni í kjölfar þess.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung