ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

„Veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:38 › 25. september 2009
Jóhannes segir það vera veruleikafirringu að gera Davíð Oddsson að ritstjóra Morgunblaðsins.

Jóhannes segir það vera veruleikafirringu að gera Davíð Oddsson að ritstjóra Morgunblaðsins. Mynd DV

„Það er veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra Morgunblaðsins. Menn ættu að minnsta kosti að bíða átekta eftir niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis og dómi hennar um orsakir og aðdraganda bankahrunsins. Ég er ekki viss um að dómurinn yfir Davíð verði honum til framdráttar sem ritstjóra,“ segir Jóhannes Jónsson, oft kenndur við Bónus.

Jóhannes segir að uppstokkun í rekstri Morgunblaðsins hafi fyrir lögun verið óhjákvæmileg. „Þarna er mikið af minningargreinum og öðru aðsendu efni og ritstjórnin þarf kannski að skrifa 6 til 8 síður. Þetta er allt of fjölmennur vinnustaður fyrir slíkt. Ég vann eitt sinn á Morgunblaðinu í þrjú ár. Þetta var góður vinnustaður og ágætir menn við stjórnvölinn. Nú ræður náhirðin ríkjum hjá Árvakri og Morgunblaðinu. Mér finnst blaðinu hafa hrakað verulega og því mun hraka enn undir ritstjórn Davíðs.“

Þessi orð lætur Jóhannes falla í ítarlegri nærmynd sem dregin er upp af Óskari Magnússyni, útgáfustjóra Morgunblaðsins, sem er í helgarblaði DV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?