ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Telur að Davíð hafi áhrif á ásýnd Moggans

14:29 › 25. september 2009
Katrín telur að Davíð muni hafa áhrif á ásýnd Morgunblaðsins.

Katrín telur að Davíð muni hafa áhrif á ásýnd Morgunblaðsins. Mynd Rakel Ósk

„Við höfum auðvitað sé fleiri stjórnmálamenn fara þennan veginn og verða ritstjórar. Hinsvegar veltir maður auðvitað fyrir sér tilganginum og trúverðugleika fjölmiðla á allt slíkt. Þeir hljóta auðvitað að vera metnir út frá því hver stýrir og á. Þetta hlýtur að hafa áhrif á ásýnd viðkomandi fjölmiðils,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra um ráðningu Davíðs Oddssonar í stól ritstjóra Morgunblaðsins.

Þetta sagði Katrín í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

Aðspurð hvort hún teldi að annnarleg sjónvarmið lægju að baki ráðningu Davíðs sagði Katrín: „Ég veit ekki hvað kalla skal annarleg sjónarmið. En það liggur auðvitað fyrir að þarna er ritstjóri með mjög ákveðnar skoðanir sem vafalaust hljóta að setja mark sitt á fjölmiðilinn í kjölfarið.“

Ennfremur sagði Katrín að nú væru í smíðum ný lög um fjölmiðla þar sem tekið verður á hlutum eins og ritstjórnarlegu sjálfstæðu og fleiru. „Það er mikilvægt að tryggja öruggt starfsumhverfi fjölmiðla og hvaða persónur eru þar í hlutverkum.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?