ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Páll verður ekki næsti ritstjóri Moggans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:11 › 22. september 2009
Páll Magnússon segist ekki verða næsti ritstjóri Morgunblaðsins.

Páll Magnússon segist ekki verða næsti ritstjóri Morgunblaðsins.

Páll Magnússon útvarpsstjóri verður ekki næsti ritstjóri Morgunblaðsins. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi um að Davíð Oddsson verði næsti ritstjóri Moggans en nafn Páls hefur einnig verið nefnt í þessu sambandi. Páll þvertekur hins vegar fyrir þetta í samtali við DV.is. Líkurnar á því að Davíð verði ráðinn ritstjóri verða því sífellt meiri og meiri.

Páll þvertekur fyrir það í svari sínu við fyrirspurn DV.is um hvort hann taki við ritstjórastöðunni af Ólafi Stephensen. Svar hans er stutt og laggott „nei“ þegar hann er spurður hvort hann muni taka við stöðunni.

Líklegt þykir að eigendur Morgunblaðsins tilkynni um nýjan ritstjóra blaðsins síðar í dag. Stjórn Árvakurs mun funda um málið klukkan hálf tvö í dag og verður ákvörðunin um næsta ritstjóra blaðsins væntanlega kynnt fjölmiðlum að fundinum loknum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.