Ný könnun MMR á trausti almennings til helstu sjónvarps-, prent- og netfréttamiðla sýnir að fleiri bera mikið traust til fjölmiðla nú en í könnun sama efnis í maí. Þá báru 14,9 prósent mikið traust til fjölmiðla en nú 18,9 prósent. Fleiri treysta DV nú, eða 5,8 prósent miðað við 4,1 prósent í maí.
Á sama tímabili hefur fjöldi þeirra sem segist bera lítið traust til fjölmiðlanna fækkað úr 44,1 prósenti í 35,8.
Aukning á trausti er mest hjá Morgunblaðinu, sem bætir við sig 6,2 prósentustigum og fer úr 51,7 prósentum í 57,9 prósent. Um 75 prósent aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV.
Meðal netfréttamiðla nýtur Mbl.is mests trausts, en 59,6 prósent segjast bera mikið traust til vefsins, sem eru 32,7 prósentustigum fleiri en þeir sem segjast bera mikið traust til Visir.is. DV.is bætir við sig trausti, fer úr 4,1 prósentustigum í 5,6 prósent.
Könnunin var framkvæmd 9. til 14. september og svöruðu 909 einstaklingar á aldrinum 18 til 67 sem valdir voru af handahófi.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
