Dætur Jaycee Lee Dugard, sem hún eignaðist með ræningja sínum Phillip Garrido, vita nákvæmlega ekki neitt um heiminn í kringum sig. Þeim hefur verið haldið frá öllum upplýsingum og eru sagðar gjörsamlega ómeðvitaðar um veröldina í kringum sín.
Dætur Jaycee sem eru fimmtán og ellefu ára og er haft eftir yfirlögreglumanni í Kaliforníu í breska dagblaðinu The Sun í dag að þær séu afar vel gefnar stúlkur. Þeim hafi hins vegar verið haldið í algjöru upplýsingasvelti og einangrun.
„Þær hafa aldrei horft á sjónvarpið, hafa ekki hugmynd um stærðfræði, landafræði, sögu eða neitt utan bæjarins Antioch,“ er haft eftir yfirlögreglumanninum. Móðir þeirra kenndi þeim að lesa og skrifa þó.
„Þær hafa aldrei heyrt um forseta Bandaríkjanna eða neitt utan landssteinanna.“
Fjölmiðlar hafa komist að því að sálfræðingar vinni nú að því að „af-heilaþvo“ stúlkurnar og móður þeirra. Mæðgurnar hafa verið fluttar til San Francisco ásamt móður Jaycee, Terry Probyn og frænku hennar Tinu Dugard.
Stúlkurnar þurfa nú að horfast í augu við að Phillip Garrido er ekki sá fullkomni faðir sem þær töldu.
Heimildir The Sun herma að Jaycee sé í litlum skrefum að útskýra fyrir dætrum sínum að henni hafi verið rænt þegar hún var 11 ára af Garrido og eiginkonu hans.
Sálfræðingar og sérfræðingar leggja nú mikið á sig að raska ekki daglegu lífi stúlkanna sem þær ólust upp við í skítugum og niðurníddum skúr Garrido og eiginkonu hans öll þessi ár. Sjónvarpið sem var í húsinu sem þau gista í í San Francisco hefur verið fjarlægt þar sem stúlkunar höfðu aldrei séð sjónvarpstæki. Þær sofa allar í sama herbergi, líkt og þær gerðu í prísundinni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung