Skuldir sem stofnað var til við framboð Borgarahreyfingarinnar í síðustu alþingiskosningum sitja eftir í flokknum þrátt fyrir að þingmenn hennar séu nú allir horfnir á önnur mið. Hreyfingin varð í gær til þegar Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, ásamt tveimur varaþingmönnum, stofnuðu Hreyfinguna eftir að þau voru ósátt með niðurstöðu landsfundar Borgarahreyfingunnar.
Talsmaður Hreyfingarinnar, Daði Ingólfsson, segir þetta eðlilegt enda komi Borgarahreyfingin til með að fá framlögin úr ríkissjóði. Stjórnmálaflokkar fá væn framlög frá ríkinu sem reiknast í hlutfalli við fjölda þingmanna hvers flokks.
„En ef það æxlast svo, sem ég efast reyndar stórlega um, að Hreyfingin fái þá peninga, þá greiðir hún að sjálfsögðu skuldir Borgarahreyfingarinnar,“ segir Daði í samtali við DV.is.
Upplausn hefur verið innan Borgarahreyfingarinnar undanfarna vikur. Þráinn Bertelsson situr sem óháður þingmaður eftir að hafa sagt sig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar á dögunum og þá stofnuðu áðurnefndir þremenningar Hreyfinguna í gær.
Borgarahreyfingin reiknar með peningunum
„Það hlýtur að vera. Mér skilst það samkvæmt stjórnsýslulögfræðingi sem ég ræddi við. Hann telur allar líkur á því,“ segir Valgeir Skagfjörð, formaður stjórnar Borgarahreyfingarinnar, aðspurður hvort menn þar á bæ reiknuðu með að fá fjárframlög ríkisins þrátt fyrir að þingmennirnir væru horfnir á braut.
Hann segir Borgarahreyfinguna hafa fengið fjóra þingmenn kjörna í síðustu kosningum, og það breytist ekki þó þingmennirnir sjálfir hafi ákveðið að hætta. Stjórnmálahreyfingin standi eftir sem slík.
Valgeir sagði það enn fremur mikil vonbrigði fyrir sig persónulega að þremenningarnir hafi ákveðið að ganga úr Borgarahreyfingunni og stofna eigin hreyfingu. Hann hafi eytt miklum tíma og kröftum í sáttarfundi til að ná sáttum milli allra aðila. „En það virðist sem það hafi verið tímaeyðsla.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna