Heiða B. Heiðars, nýkjörinn varaformaður Borgarahreyfingarinnar, telur algeran óþarfa að stofna nýja hreyfingu til þess að framfylgja upprunalegri stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar, líkt og þrír fyrrverandi þingmenn Borgarahreyfingarinnar hafa nú gert, þar sem stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar hafi ekkert verið breytt.
„Það hefur svo margt heimskulegt komið frá þeim síðustu daga þannig að þetta kemur samt ekkert á óvart. Þau eru bara að reyna að finna sér málefnalegar ástæður, innan gæsalappa, til þess að koma sér út úr þeirri stöðu sem þau eru nú í þar sem persónur þeirra eru ómarktækar,“ segir Heiða.
Heiða gefur lítið fyrir hugmyndir um að Borgarahreyfingin geti átt aðkomu að hinni nýju Hreyfingu þingmannanna Þórs Saari, Birgittu Jónsdóttur og Margrétar Tryggvadóttur enda telur hún víst að þau myndu þá aðeins handvelja þá úr Borgarahreyfingunni sem þau kæri sig um að vinna með. „Þau hafa handvalið sér fólk sem þau vilja tala við og er þeim þóknanlegt. Fólk sem hefur ekki gagnrýnt þau. Þau vilja enga umræðu bara halelújakór í kringum sig,“ segir Heiða.
Þráinn Bertelsson situr sem óháður þingmaður eftir að hann sagði sig úr Borgarahreyfingunni eftir átök við þingflokksfélaga sína þrjá sem nú hafa einnig yfirgefið Borgarahreyfinguna. Borgarahreyfingin stendur því nú uppi þingmannslaus en sér Heiða fyrir sér að Þráin geti snúið aftur nú þegar Birgitta, Þór og Margrét hafa yfirgefið flokkinn. „Ég bara veit ekkert um það en það er ekkert ólíklegt. Við höfum öll getað unnið með Þráni og fílum hann í tætlur. Hann er eini þingmaðurinn sem staðið hefur við stefnu hreyfingarinnar og væri velkominn aftur. Hann lætur okkur þá bara vita,“ segir Heiða B. Heiðars.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna