Þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar, þau Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir, ætla ásamt tveimur varaþingmönnum sínum að stofna nýja hreyfingu með það að markmiði að framfylgja upprunalegri stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar. Þingmennirnir sem nú kljúfa sig frá Borgarahreyfingunni kalla hið nýja stjórnmálaafl einfaldlega Hreyfinguna.
Þingfólkið ætlar þessari nýju hreyfingu að veita grasrótarhreyfingum rödd á Alþingi. Þau hyggjast lágmarka miðstýringu og opna fleirum en skráðum félögum þátttöku. Með þessu telur hópurinn sig geta tryggt sátt í baklandi sínu. Þessir þrír fyrrum þingmenn Borgarahreyfingarinnar telja að Borgarahreyfingin í núverandi mynd geti orðið hluti af þessari nýju grasrótarhreyfingu á þingi ásamt öðrum grasrótarsamtökum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun