Sveinn Friðfinnsson er grunaður um að standa að baki milljarða fjársvikamyllu í Svíþjóð. Félag hans lofaði gríðarlegri ávöxtun á einu ári, en fjárfestar fengu engar upplýsingar. Sænskar spjallsíður hafa logað vegna hinna meintu fjársvika Sveins og félaga.
Sveinn Friðfinnsson, 42 ára gamall Grundfirðingur, er grunaður um að vera höfuðpaurinn í stórri svikamyllu í Svíþjóð sem gekk út að fá marga minni fjárfesta til þess að leggja sparifé sitt inn í fyrirtækið Select Offshore Investa, sem lofaði margföldum hagnaði með gjaldeyrisviðskiptum. Gjaldeyrisvefsíðan zierra.net, sem skráð er í skattaskjólinu Vanuatu, var notuð til þess að lokka að fjárfesta.
Um þúsund Svíar tóku þátt í fjárfestingunni og lögðu sem svarar milljörðum króna inn í fyrirtækið.
Einn einstaklingur á sænskri spjallsíðu segir farir sínar ekki sléttar: „Ég fjárfesti og ég hef ekki getað tekið krónu út í meira en fjórtán mánuði, þrátt fyrir að ég hafi ýtt á eftir því næstum daglega.“
Á öðrum stað dregur spjallari viðskipti fyrirtækisins í efa og kallar þau svik. „Eins og með öll píramídasvindl, þá ganga þau út á að safna innistæðum, svo þeir sem eru á toppnum geti tekið peningana út.“
Annar spjallarinn kemur Sveini hins vegar til varnar og segir: „Ég hef auðveldlega getað tekið peninga út. Ég skil ekki afhverju þið segið að þetta sé svikamylla. Ég ber fullt traust til Sveins, enda hef ég aldrei heyrt neitt nema gott um hann.“
Einn sem tekur þátt í umræðunum lýsir því að hann sé mjög reiður yfir því að hafa verið blekktur. Það sé gjörsamlega ómögulegt að ná í einhvern hjá fyrirtækinu, hvort sem er í gegnum tölvupóst, í síma, eða í gegnum þjónustukerfið. Hann segist telja að hann hafi verið blekktur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision