ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Sömu lottótölur tvisvar í röð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 18. september 2009
Líkurnar á þessari óvæntu uppákomu eru einn á móti fjórum milljónum.

Líkurnar á þessari óvæntu uppákomu eru einn á móti fjórum milljónum. Mynd Photos

Þátttakendur í búlgarska lottóinu ráku margir upp stór augu þegar þeir sáu lottótölurnar í útdrætti vikunnar. Um var að ræða nákvæmlega sömu tölur og komu upp úr pottinum vikuna þar á undan.

Forsvarsmenn lottósins segja að um ótrúlega tilviljun hafi verið að ræða. Ekki eru allir þó á sama máli og vilja einhverjir meina að um svindl hafi verið að ræða. Það er svo sem ekki óeðlilegt að menn spyrji sig að því, í ljósi þess að líkurnar á því að slíkt gerist eru einn á móti fjórum milljónum.

Nú hefur rannsókn farið fram á því hvort forsvarsmenn útdráttarins hafi haft óhreint mjöl í pokahorninu. Hún hefur engu skilað. Átján manns skiptu með sér seinni vinningnum en enginn vann í fyrra skiptið. Lukkutölurnar í þessum tveimur útdráttum voru 4, 15, 23, 24, 35 og 42.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.