Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins hættir störfum í lok dags. Starfsfólki Morgunblaðsins var tilkynnt um starfslok Ólafs í dag en ekkert hefur verið gefið upp um arftaka Ólafs.
Ólafur hefur ekki kvatt samstarfsfólk sitt formlega en dagurinn í dag verður síðasti starfsdagur hans í Hádegismóum. Blaðamönnum á Morgunblaðinu er nokkuð brugðið við tíðindin og bíða nú í óvissu eftir fregnum af því hver taki við keflinu af Ólafi.
Starfslok Ólafs koma þó ekki sem þruma úr heiðskíru lofti þar sem blikur hafa lengi verið á lofti í Hádegismóum og staða Ólafs hefur þótt tvísýn ekki síst þar sem hann þykir hallur undir Evrópusambandið og á þar ekki samleið með nýjum hluthöfum í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Óskar Magnússon fer fyrir hluthafahópnum og framkvæmdavaldið liggur hjá honum og búast má við að starfslok Ólafs sé byrjunin á róttækum breytingum á Mogganum. Fyrir mánaðamót er reiknað með að Óskar gangi lengra og tilkynni um stórfelldan niðurskurð jafnvel með því að leggja niður sunnudagsútgáfu blaðsins.
Mismunandi áherslur varðandi ritstjórn og rekstur
Í tilkynningu frá Óskari Magnússyni segir að samkomulag hafi orðið um starfslok Ólafs milli eigenda og hans sjálfs. Ástæðan er sögð mismunandi áherslur varðandi ritstjórn og rekstur Morgunblaðsins sem komið fram hafi við stefnumótun og endurskipulagningu á starfsemi Árvakurs.
Segir að nýr ritstjóri verði ráðinn sem fyrst og að ekki standi til að tjá sig frekar um málið við fjölmiðla.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð