Ritstjóri býður upp á bjór
Hádramatík í Hádegismóum. Ólafur Stephensen býður starfsfólki í bjór til að kveðja.
Starfsfólki Morgunblaðsins er mjög brugðið eftir að tilkynnt var um starfslok Ólafs Stephensen nú fyrir stundu. Ólafur ku vera að pakka niður föggum sínum en eftir því sem næst verður komist kom ekkert nýtt fram á fundi starfsmanna sem fylgdi í kjölfar tíðindanna.
Ólafur mun hins vegar taka sér tíma til að kveðja fyrrverandi lærisveina sína því hann mun halda samkvæmi þar sem boðið verður upp á bjór og aðrar veitingar.
Eins og sagt er frá í Sandkorni í DV í dag hafa verið miklir fáleikar milli Óskars Magnússonar útgefanda og Ólafs ritstjóra undanfarið. Í DV var því spáð að draga myndi til tíðinda á næstu dögum eins og raunin hefur nú orðið. Staða Ólafs var orðin afar veik og þá ekki síst vegna aðdáunar hans á ESB og vitað var af áhuga hluthafahópsins að leysa hann frá starfi sínu.
Reiknað er með að Óskar Magnússon tilkynni um stórfelldan niðurskurð hjá Morgunblaðinu fyrir mánaðarmót.
Þriðjudagur 22. september 2009 kl 13:11
Páll verður ekki næsti ritstjóri Moggans
Föstudagur 18. september 2009 kl 17:18
Ólafur segist ganga stoltur frá borði
Föstudagur 18. september 2009 kl 15:10
Starfsmenn funda, margir orðaðir við ritstjórastólinn
Föstudagur 18. september 2009 kl 14:55
Kolbrún: Dómgreindarleysi að láta Ólaf fara
Föstudagur 18. september 2009 kl 14:20









