ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Ragnar með móral

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:40 › 18. september 2009
Ragnar huggaði sig við það að óheppni aukaleikarinn fær pláss í aukaefninu á DVD-útgáfunni.

Ragnar huggaði sig við það að óheppni aukaleikarinn fær pláss í aukaefninu á DVD-útgáfunni. Mynd DV

Leikstjórinn Ragnar Bragason stendur nú í ströngu við að klippa nýjustu kvikmynd sína, Bjarnfreðarson. Eins og margir vita er myndin byggð á persónum úr sjónvarpsþáttunum Nætur-, Dag- og Fangavaktin. Ragnar er duglegur við að uppfæra stöðu sína á Facebook og á dögunum sagðist hann vera með mikinn móral þar sem hann þurfti að klippa leikara úr myndinni.

Ragnar huggaði sig við það að pláss væri fyrir leikarann í aukaefninu á DVD-útgáfunni. Varð uppi fótur og fit á Facebook-síðu leikstjórans þar sem tveir leikarar myndarinnar vildu fullvissa sig um að þeir væru ekki þeir óheppnu. Svo var ekki en Ragnar hefur þó ekki enn gefið upp hver óheppni leikarinn er.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.